2013-06-11 13:12:43 CEST

2013-06-11 13:13:45 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Leiðrétting við frétt um útboð ríkisvíxla sem birt var 10. Júní 2013 18:06:35 CEST


Dagsetning umsóknar um það hvenær RIKV 13 1216 verði tekin til viðskipta í
NASDAQ OMX á Íslandi var röng, rétt dagsetning er miðvikudaginn 19. júní 2013. 



Leiðrétt frétt:

Fimmtudaginn 13. júní kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á
ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 13 0916 og RIKV 13 1216 sem eru með gjalddaga 16.
september og 16. desember 2013. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að
hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að
gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta.
Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er þriðjudagur 18. júní 2013.

Sótt verður um að RIKV 13 1216 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á
Íslandi miðvikudaginn 19. júní 2013. 

Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569
9635.