2008-05-09 12:07:26 CEST

2008-05-09 12:08:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
FL GROUP hf. - Fyrirtækjafréttir

Niðurstöður hluthafafundar FL Group hf.


Á hluthafafundi FL Group hf. sem haldinn var föstudaginn 9. maí. 2008 kl. 8.30
voru eftirfarandi tillögur stjórnar samþykktar. Hluthafar sem fara með rúmlega
84% hlutafjár voru mættir til fundarins. 

1.Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir skráningu hlutabréfa
félagsins úr OMX Nordic Exchange á Íslandi. 

Tillagan var samþykkt með 99,86% greiddra atkvæða.

2.Tillaga um að stjórn félagsins verði falið að kaupa hluti þeirra hluthafa í
félaginu er þess óska fyrir 21. maí 2008. Greitt verði fyrir hlutina með hlutum
í Glitni banka hf. Gengi hlutabréfa í FL Group hf. við kaupin skal vera kr.
6,68 fyrir hvern hlut. Gengi hlutabréfa í Glitni banka hf. skal vera kr. 17,05
fyrir hvern hlut. Þannig fær hver hluthafi er tekur kauptilboðinu 0,39 hluti í
Glitni banka hf. fyrir hvern hlut í FL Group hf. 

Tillagan var samþykkt.

3.Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað í tengslum við framangreind
kaup á hlutabréfum í FL Group hf. að kaupa allt að 20% eigin hluta fyrir kr.
6,68 hvern hlut. Heimildin skal gilda til og með 20. júní 2008. Verði eigin
hlutir í eign félagsins umfram 10% eftir viðskiptin skal stjórn félagsins lækka
hlutafé félagsins, í samræmi við ákvæði laga um hlutafélög, þannig að eigin
hlutir eftir slíka hlutafjárlækkun verði ekki umfram 10% af hlutafénu. 

Tillagan var samþykkt.

4.Tillaga um að stjórn félagsins verði heimilað, í því skyni að mæta
framangreindum kaupum á hlutum í FL Group hf. að kaupa allt að 862.017.533
hluti í Glitni banka hf. fyrir kr. 17,05 hvern hlut og greiða fyrir með
lántöku. 

Tillagan var samþykkt.


Nánari upplýsingar veitir:

Júlíus Þorfinnsson, forstöðumaður samskiptasviðs
sími: 591 4400
julius@flgroup.is