|
|||
2010-02-01 17:50:30 CET 2010-02-01 17:51:30 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumRannveig Rist formaður stjórnar SkiptaRannveig Rist hefur tekið við formennsku í stjórn Skipta hf. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar Skipta fyrr í dag. Með formennsku Rannveigar er tryggð samfelldni í stjórn fyrirtækisins en hún hefur mikla reynslu og þekkingu á rekstri þess. Rannveig hefur setið í stjórn Skipta og Símans frá árinu 2002 þegar fyrirtækið var í eigu íslenska ríkisins. Hún var formaður stjórnar frá 2002 til 2005 en hefur síðan verið varaformaður stjórnar. Lýður Guðmundsson lætur nú af formennsku en mun sitja áfram í stjórn Skipta. |
|||
|