2010-06-22 17:34:52 CEST

2010-06-22 17:35:52 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð verðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414


Föstudaginn 25. júní kl. 11:00 fer fram útboð með tilboðsfyrirkomulagi hjá
lánamálum ríkisins. 

Í þessu útboði verða seld bréf í RIKS 21 0414.  Heildarfjárhæð samþykktra
tilboða verður tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilur sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa
er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir
fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudaginn 30. júní 2010.