|
|||
2013-08-27 11:05:00 CEST 2013-08-27 11:05:01 CEST REGULATED INFORMATION Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 Borgartún - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur fagfjárfestasjóðsins LFEST1 vegna fyrri árshelmings 2013Fagfjárfestasjóðurinn LFEST1 sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2010. -- Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt rekstrarreikningi. -- Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi. -- Árshlutareikningurinn var kannaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2013, efnahagi hans 30. júní 2013 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins 2013, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með morgundeginum á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is Nánari upplýsingar um árshlutareikning LFEST1 veitir Heiðar Ingi Ólafsson sjóðstjóri, í síma 444 7421. |
|||
|