2013-08-27 11:18:59 CEST

2013-08-27 11:20:02 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Íslandssjóðir hf. - Ársreikningur

Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2013


Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og
fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex
mánuði ársins 2013. 



Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu 6 mánuði ársins 2013

  -- Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur
     árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning
     verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í
     samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem
     settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
  -- Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2013 er 146
     m.kr. samanborið við 127 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
  -- Rekstrargjöld námu 479 m.kr. samanborið við 409 m.kr. fyrir sama tímabil
     árið áður og hækkuðu um 17,7%.
  -- Hreinar rekstrartekjur námu 662 m.kr. samanborið við 568 m.kr. fyrir sama
     tímabil árið áður, jukust um 16,5%.
  -- Eigið fé 30. júní 2013 nam 1.878 m.kr. en var 1.925 m.kr. í ársbyrjun.
  -- Heildareignir félagsins 30. júní 2013 námu 2.643 m.kr. en voru 3.006 m.kr.
     í árslok 2012.
  -- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um
     fjármálafyrirtæki, var 143,4% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera
     lægra en 8,0%.

  -- Í lok júní 2013 voru 19 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign
     þeirra 113.755 milljónum króna samanborið við 114.145 m.kr. í lok árs 2012.
     Þar af eru 15 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 99.017 milljónir
     króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 14.738 milljónir
     króna. Einn sjóður sem skráður er í Lúxemborg er í stýringu félagsins.
  -- Stjórn samþykkti að sameina Lengri skuldabréfasjóðinn, sem yfirtekinn var
     frá rekstrarfélagi Byrs, við Ríkisskuldabréf - Sjóð 5. Gert er ráð fyrir að
     sameiningu sjóðanna verði lokið í septembermánuði.
  -- Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte hf. en við könnun
     kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd
     af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2013.
  -- Á fyrri hluta ársins störfuðu 17 starfsmenn hjá Íslandssjóðum.
     Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.





Lykiltölur í m.kr.: Sjá fréttatilkynningu í viðhengi.







Árshlutareikningur félagsins munu liggja frammi hjá félaginu í húsnæði
Íslandsbanka, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.islandssjodir.is frá og með 3.
september 2013. 



Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn
Ólafsson, fram­kvæmda­stjóri félagsins í síma 440-4593