2013-08-28 10:38:32 CEST

2013-08-28 10:38:54 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Íslandsbanki hf. - Ársreikningur

Islandsbanki hf. : Afkoma 2. árshluta Íslandsbanka 2013


HELSTU NIÐURSTÖÐUR

  * Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 6,6 ma. kr. á öðrum ársfjórðungi
    2013 (2Q12: 6,0 ma. kr.) og 11,2 ma. kr. á fyrri árshelmingi (1H12: 11,6 ma.
    kr.)
  * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 17,4% á fjórðungnum (2Q12: 18,6%) en
    14,8% sé horft til fyrri árshelmings (1H12: 17,9%). Lækkun á arðsemi skýrist
    að mestu af hærra eigin fé, sem hefur hækkað um 15% á milli ára, eða frá
    135 ma. kr. í 156. ma. kr. við lok júní 2013.
  * Skattar og gjöld greidd ríkisstofnunum voru 3 ma. kr. á ársfjórðungnum
    samanborið við 2,2 ma. kr. á 2Q12.
  * Frá stofnun bankans hafa um 35 þúsund einstaklingar og um 4 þúsund fyrirtæki
    fengið afskriftir, eftirgjafir eða leiðréttingar á skuldum sem nema um 500
    ma. kr.
  * Heildareignir voru 823 ma. kr. við lok tímabilsins (mars 2013: 829 ma. kr.),
    og útlán til viðskiptavina lækkuðu um 1% í 539 ma. kr. (mars 2013: 543 ma.
    kr.).
  * Vaxtamunur var 3,4% (1Q13: 3,6%) og fer lækkandi samhliða því að afföll á
    lánasafni sem keypt var frá Glitni fara úr bókum bankans.
  * Hreinar þóknanatekjur jukust í 2,7 ma. kr. á fjórðungnum (2Q12: 2,3 ma. kr.)
    og 5,1 ma. kr sé litið til fyrri árshelmings (1H12: 4,4 ma. kr.). Hækkunin
    er um 15% á milli ára og má að mestu rekja til markaða, viðskiptabanka,
    eignastýringar og dótturfélaga bankans.
  * Nettó tekjufærsla vegna endurmats lánasafnsins var 4,7 ma. kr. á fjórðungnum
    (2Q12: 3,6 ma. kr.) og 7,9 ma. kr á fyrri árshelmingi (1H12: 2,1 ma. kr.).
  * Heildarinnlán hækkuðu í 506 ma. kr. samanborið við 492 ma. kr. í lok mars
    2013 og sýna eðlilegar sveiflur í innlánum viðskiptavina og
    fjármálastofnanna.
  * Eigið fé nam 155,5 ma. kr., og hækkaði um 2% frá lokum fyrri árshelmings
    2013 og 15% á milli ára. Eiginfjárhlutfall styrktist í 27,4% (mars
    2013: 26,2%) og  eiginfjárhlutfall A (Tier 1) var 24,0% (mars 2013: 22,9%).

Nánari upplýsingar um afkomu bankans má finna í ítarlegri afkomutilkynningu hér
meðfylgjandi.



Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

 "Afkoma á öðrum ársfjórðungi var í  takt við áætlanir og jákvæð samlegðaráhrif
vegna sameininga eru að koma fram á báðum hliðum rekstrarreikningsins.
Markverður árangur hefur náðst í hagræðingu á rekstri en kostnaðarhlutfall
bankans lækkaði í 41,1% á 2F13 og raunlækkun á rekstrarkostnaði milli ára er
7,5%.

Íslandsbanki var útnefndur besti íslenski bankinn af hinu virta tímariti
Euromoney og var VÍB, eignastýring Íslandsbanka, valin fremsta
eignastýringaþjónustan á Íslandi af breska tímaritinu World Finance. Þessar tvær
viðurkenningar sýna vel hversu gott og metnaðarfullt starf er verið að vinna hjá
bankanum.

Íslandsbanki stækkaði skuldabréfaflokka sína á tímabilinu og er bankinn orðinn
reglulegur útgefandi víxla. Íslandsbanki hefur einnig, í samstarfi við Bank of
America Merill Lynch, fengið  heimild til að gefa út skuldabréf í erlendri mynt
að andvirði 250 milljóna Bandaríkjadala og mun nýta tækifærið ef réttar aðstæður
skapast á alþjóðlegum skuldabréfamörkuðum.

Endurútreikningur ólögmætra gengistryggðra lána gengur vel en búið verður að
ljúka endurútreikningi á 90% virkra lána í lok mánaðarins. Íslandsbanki mun alls
endurreikna um 15.000 ólögmæt gengistryggð lán og er áætlað að öllum
endurútreikningi verði lokið fyrir árslok."



Síðar í dag munu Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri, kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara
 fyrirspurnum. Fundurinn hefst kl. 16.00 og fer fram á íslensku. Nauðsynlegt að
gestir skrái sig á afkomukynninguna á vef bankans.

Hægt verður að nálgast fundargögn frá kynningunni á
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

 Nánari upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440 3925.


[HUG#1725277]