2015-04-30 11:16:40 CEST

2015-04-30 11:17:40 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sveitarfélagið Árborg - Ársreikningur

Sveitarfélagið Árborg - ársreikningur 2014


Sveitarfélagið Árborg skilar meiri afgangi frá rekstri en áætlað var




Rekstrarafkoma Sveitarfélagsins Árborgar árið 2014 er betri en fjárhagsáætlun
gerði ráð fyrir og afgangur af rekstri samstæðunnar fimmta árið í röð.
Fjármagnsgjöld nema 334 millj.kr. nettó, eða um 59,5 millj.kr. minna en áætlun
gerði ráð fyrir. Afskriftir nema 368 millj.kr., en engu að síður er afgangur
upp á 122,9 millj.kr. fyrir skatta sem er 63,5 millj.kr. hærra en gert var ráð
fyrir í áætlun. Tekjuskattur nemur 20,5 millj.kr. en rekstrarniðurstaða
samstæðunnar er jákvæð um 102,3 millj.kr., eða 42,7 millj.kr. betri niðurstaða
en áætlun gerði ráð fyrir. 

Skuldir eru enn miklar og skuldahlutfallið 153%. Fjárfesting á árinu 2014 nam
1.403 millj.kr., veltufé frá rekstri var 744 millj.kr. og 728 millj.kr.
greiddar í afborganir lána. Ný lán voru tekin að fjárhæð 1.390 millj.kr.
Gjaldfærsla lífeyrisskuldbindingar hækkaði meira á milli ára en gert hafði
verið ráð fyrir, sömuleiðis hækkaði lífeyrisskuldbinding sem hluti af skuldum
sveitarfélagsins, eða um 135 millj.kr. á milli ára, sem er meiri hækkun nú en
undanfarin ár. Áfram verður leitast við að vinna að hagræðingu í rekstri og
lækkun skulda eins og kostur er.