|
|||
2009-05-22 16:15:25 CEST 2009-05-22 16:16:35 CEST REGULATED INFORMATION Icebank - FyrirtækjafréttirSkipan slitastjórnar fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf. - Nefndarmaður í skilanefnd bankans lætur af störfumSlitastjórn fyrir Sparisjóðabanka Íslands hf. var skipuð af Héraðsdómi Reykjavíkur þann 20.maí sl. Í slitastjórninni sitja Andri Árnason hrl., Berglind Svavarsdóttir hrl. og Tómas Jónsson hrl., sem jafnframt er aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Tómas tekur sjálfkrafa sæti í slitastjórn samkvæmt ákvæðum laga um fjármálafyrirtæki, sbr. lög nr. 44/2009. Áslaug Björgvinsdóttir hefur látið af störfum í skilanefnd Sparisjóðabankans. Skilanefndina skipa því eftirleiðis eftirfarandi þrír einstaklingar: Erling Tómasson löggiltur endurskoðandi og formaður nefndarinnar, Hjördís Edda Harðardóttir hrl. og Jón Ármann Guðjónsson hdl. |
|||
|