2023-06-06 22:01:00 CEST

2023-06-06 22:01:00 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Alvotech S.A. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Úthlutun kauprétta


Stjórn Alvotech ákvað þann 6. júní 2023 að veita ákveðnum stjórnarmönnum kauprétti fyrir alls 109.524 hlutum í Alvotech. Kaupréttirnir voru veittir fjórum óháðum stjórnarmönnum.

Kaupréttarsamningunum er ætlað að samtvinna hagsmuni stjórnarmanna og Alvotech til lengri tíma. Skilmálar samninganna eru í samræmi við kaupréttarkerfi sem samþykkt var á aðalfundi Alvotech þann 6. júní 2023 og í samræmi við starfskjarastefnu félagsins sem samþykkt var á sama aðalfundi.

Meginefni kaupréttarsamninganna er eftirfarandi:

  • Veittur er kaupréttur á hlutabréfum á viðmiðunarverðinu 8.40 Bandaríkjadalir á hlut.* 
  • Ávinnslutími er þrjú ár frá úthlutun kaupréttanna, þ.e. þriðjungur kaupréttanna virkjast á hverju ári sem liðið er frá úthlutun. Viðmiðunarverð ræðst af gengi hlutabréfa Alvotech á aðalfundardegi, þegar úthlutunin átti sér stað.
  • Rétthafi þarf að sitja í stjórn Alvotech til að geta nýtt kaupréttinn.

Hér erum að ræða fyrstu úthlutun Alvotech á kaupréttum. Heildarfjöldi útistandandi kauprétta sem Alvotech hefur veitt er því jafn þeim fjölda kauprétta sem veittir voru stjórnarmönnum þann 6. júní 2023.

*Kaupréttargengið er ákvarðað út frá skráðu gengi hlutabréfa Alvotech (Nasdaq:ALVO) sem birt var á vefnum nasdaq.com við opnun markaðarins þann 6. júní 2023.

Alvotech, fjárfestatengsl
Benedikt Stefánsson
alvotech.ir[at]alvotech.com