2012-02-07 09:36:14 CET

2012-02-07 09:37:16 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Marel hf. - Hluthafafundir

Aðalfundur Marel hf. 2012


Aðalfundur Marel hf. verður haldinn í höfuðstöðvum félagsins, Austurhrauni 9,
Garðabæ, miðvikudaginn 29. febrúar nk., kl. 16:00. 



Dagskrá:

• Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.13 í samþykktum félagsins.

• Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.

• Önnur mál, löglega borin fram.



Fundarstörf fara fram á ensku

.

Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. 



Til þess að tillögur frá hluthöfum sem leggja á fyrir á fundinum verði teknar
þar til umræðu verður að skila þeim til stjórnar félagsins eigi síðar en sjö
dögum fyrir fundinn. 



Frekari upplýsingar um tímafresti þá sem gilda í tengslum við rétt hluthafa til
að fá mál sett á dagskrá hluthafafundar, leggja fram ályktunartillögur fyrir
fundinn, o.fl. er að finna á aðalfundarvef félagsins, www.marel.com/agm. Þar er
jafnframt að finna allar frekari upplýsingar í tengslum við aðalfundinn, þ.m.t.
ársskýrslu félagsins, drög að dagskrá fundarins, tillögur stjórnar félagsins,
ársreikning félagsins fyrir árið 2011, upplýsingar um 

heildarfjölda hluta og atkvæðafjölda í félaginu m.v. 7. febrúar 2012,
umboðsform auk upplýsinga um skjöl sem lögð verða fyrir fundinn. 



Endanleg dagskrá fundarins og tillögur verða aðgengilegar hluthöfum sjö dögum
fyrir fundinn á framangreindum aðalfundarvef félagsins sem og á skrifstofu
félagsins að Austurhrauni 9, 210 Garðabæ. 



Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang.
Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 15.30. 



Stjórn Marel hf.