2014-05-12 13:47:45 CEST

2014-05-12 13:48:45 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reginn hf. - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning um undirritun Regins hf. á samkomulagi vegna lóða við Austurhöfn (Hörpureit 1 og 2)


Undirritað hefur verið samkomulag milli Regins hf. og Landstólpa þróunarfélags
ehf.  um að hefja einkaviðræður um kaup Regins á öllu verslunar- og
þjónusturými á reitum 1 og 2 við Austurhöfn (Hörpureitum). Alls er um að ræða
um 7.800 m2. útleigurými sem að megninu til er staðsett á 1. og 2. hæð
bygginganna. Gera má ráð fyrir að jöfn skipting geti verið á milli verslunar-
og þjónustustarfsemi í þessari einingu. 

Landstólpar þróunarfélag ehf., sem fer með sameiginlegt forræði lóðanna, er í
meirihlutaeigu Stólpa ehf.  Stefnt er að því að ljúka viðræðum innan tveggja
mánaða með undirritun kaupsamnings. 

Að mati Regins er um að ræða áhugavert svæði sem mun styrkja og efla miðbæ
Reykjavíkur sem verslunar- og þjónustusvæði. Ef af kaupsamningi verður yrði
þetta um 3,5% aukning á eignasafni Regins mælt í fermetrum en fyrir á félagið
um 220 þús.m2 af fasteignum, þar af eru um 90 þús.m2 verslunarhúsnæði. 

Undirritað samkomulag aðila er háð skilyrðum og fyrirvörum. Vakin er athygli á
að um er að ræða einkaviðræður um kaup og er því töluverð óvissa um hvort af
kaupum Regins verður. 



Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262