2009-09-11 17:06:06 CEST

2009-09-11 17:07:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Meðfylgjandi er óendurskoðað og ókannað uppgjör vegna Kópavogsbæjar fyrstu sex
mánuði ársins 2009, sem sett er upp af endurskoðendum bæjarins samkvæmt
upplýsingum og gögnum sem þeir fengu send eða óskuðu eftir frá bænum. 

Uppgjörið er notað innanhúss til að athuga hvernig rekstrarkostnaður þróast og
myndar grunn að endurskoðaðri fjárhagsáætlun vegna 2009, sem reiknað er með að
birt verði fyrir lok septembermánaðar. 

Aðal frávikið frá áætlun liggur í fjármagnsliðum. Er þar aðallega um að ræða
reiknað gengistap vegna erlendra lána er (um 686 m.kr.), verðbólga varð heldur
meiri en reiknað var með og markaðs vextir hærri. Rekstur málaflokka er nánast
á áætlun. 

Afkoma fyrir fjármagnsliði og afskriftir nemur alls 1.372 m.kr. en í áætlun var
gert ráð fyrir 1.417 m.kr. Þrátt fyrir erfiðar aðstæður í samfélaginu og með
hliðsjón af samfélagslegum skyldum bæjarfélagsins, einkum þegar hart er í ári,
hefur almennur rekstur bæjarsjóðs verið í takti við áætlun, sem unnin var í lok
síðasta árs.

kopavogur-06-2009.pdf