2011-04-19 11:09:00 CEST

2011-04-20 11:15:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Ársreikningur

Ársreikningur Reykjanesbæjar fyrir árið 2010


Bæjarsjóður Reykjanesbæjar skilaði 639,7 milljón kr. rekstrarhagnaði árið 2010,
samkvæmt ársreikningi bæjarins sem lagður var fram í bæjarstjórn í dag. 

Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 
jákvæð um tæpar 351 milljónir kr. eða 4,86%. 

Samstæða Reykjanesbæjar, sem telur auk bæjarsjóðs aðrar stofnanir bæjarins,
s.s. HS veitur, Reykjaneshöfn og félagslegar húseignir, er hagstæð um 322,5
milljónir kr.  Rekstrarniðurstaða samstæðu fyrir afskriftir og fjármangsliði
(EBITDA) er jákvæð um 2,1 milljarð króna eða 17,8%. 

Rekstrartekjur Reykjanesbæjar námu alls 11,8 milljörðum kr. Þar af námu
rekstrartekjur bæjarsjóðs um 7,2  milljörðum kr. 

Heildareignir Reykjanesbæjar námu um  52,1 milljörðum kr. í árslok 2010. 
Heildarskuldir Reykjanesbæjar námu um 43,4 milljörðum kr. en þar með eru taldar
m.a. skuldir HS veitna og framreiknaður leigukostnaður til næstu 25 ára. 
Í lok árs 2010 mældist eiginfjárhlutfall samstæðu  16,79% en bæjarsjóðs 19,07%. 

Verkefnið  framundan er að styrkja  lausafjárstöðu og eigið fé
sveitarfélagsins.  Um  19 milljarða kr. peningalegar eignir bæjarins, utan
lögbundinna verkefna sveitarfélaga, geta styrkt lausafjárstöðu og lækkað
skuldir verulega. Aðgerðir á þessu ári (2011) munu styrkja eiginfjárstöðu
Reykjanesbæjar umtalsvert. 

Raunhæfustu leiðirnar til styrkingar á fjárhagsstöðu Reykjanesbæjar eru virkjun
þeirra mörgu atvinnutækifæra sem bærinn hefur barist fyrir undanfarin ár.

reykjanesbær 2010.pdf