2013-10-15 18:55:34 CEST

2013-10-15 18:56:35 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs september 2013


54 íbúðir í Vindakór seldar

Íbúðalánasjóður seldi í september 54 íbúða fjölbýlishús við Vindakór í
Kópavogi. Húsið er samtals um 10.500 fermetrar með bílageymslu. Húseignin í
Vindakór er á meðal þeirra eigna sem sjóðurinn leysti til sín árið 2009, en
mikið verk fólst í að meta ástand og ágalla eignarinnar. Eiginlegt söluferli
fór af stað síðla árs 2012, en áður hafði sjóðurinn reynt að selja eignina í
árslok 2009. 

Alls hefur Íbúðalánasjóður selt 218 eignir á fyrstu 9 mánuðum ársins samanborið
við 98 á sama tímabili í fyrra. Áhersla hefur verið lögð á sölu stærri eininga
og skýrist magnaukning í sölu m.a. af sölu nokkurra fjölbýlishúsa.