2011-04-20 14:06:00 CEST

2011-04-20 14:06:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Fyrirtækjafréttir

Þriggja ára áætlun Reykjanesbæjar gerir ráð fyrir lækkun skulda


Reykjanesbær áætlar að svonefnt skuldahlutfall bæjarsjóðs verði komið niður í
195% árið 2014, samkvæmt þriggja ára áætlun sem lögð var fram í bæjarstjórn í
gærkvöldi. Gert er ráð fyrir að rekstrarafgangur og peningalegar eignir verði
nýttar til að greiða niður skuldir á tímabilinu. Gert er ráð fyrir að
skuldahlutfall samstæðu verði komið í 211% árið 2014. Skuldahlutfall mælir
heildaskuldir á móti rekstrartekjum eins árs. 

Samkvæmt ársreikningi ársins 2010 var EBITDA bæjarsjóðs jákvæð um 351 milljón
kr. og samstæðu jákvæð um 2,1 milljarð kr. Í áætlun ársins 2011 er gert ráð
fyrir 466 milljón kr. jákvæðri Ebitdu og 2,7 milljörðum hjá samstæðu.  Í
þriggja ára áætlun 2012-2014 er gert ráð fyrir áframhaldandi jákvæðri
rekstrarniðurstöðu þótt gætt sé varfærnissjónarmiða um tekjuaukningu. Í
áætluninni er t.d. vart getið áhrifa af aukinni atvinnusköpun, s.s kísilveri og
álveri í Helguvík, gagnaveri og heilsuferðamennsku á Ásbrú og jarðauðlindagarði
á Reykjanesi. 

Í áætluninni er gert ráð fyrir að skuldabréf og aðrar peningalegar eignir sem
ekki tilheyra lögbundnum rekstri sveitarfélagsins, verði nýttar til að lækka
skuldir Reykjanesbæjar. Nú þegar hafa 2,5 milljarðar af skuldabréfi sem gefið
var út árið 2008, á gjalddaga 2018, verið greiddir. Lán frá norræna
fjárfestingarbankanum var greitt upp í fyrra og stefnt er að uppgreiðslu á láni
írska bankans Depfa innan tveggja ára.