|
|||
2009-06-02 15:44:04 CEST 2009-06-02 15:45:04 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóðurinn í Keflavík - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum- Sparisjóðsstjóraskipti hjá Sparisjóðnum í KeflavíkGeirmundur Kristinsson, Sparisjóðsstjóri Sparisjóðsins í Keflavík lætur formlega af störfum sem Sparisjóðsstjóri frá og með 1. júní 2009. Við starfi Sparisjóðsstjóra tekur Angantýr V. Jónasson sem hefur síðustu misseri gengt starfi svæðisstjóra Sparisjóðsins í Keflavík á vestfjörðum. Áður hafði verið tilkynnt um þessa breytingu á aðalfundi Sparisjóðsins í apríl s.l. Sparisjóðurinn í Keflavík og Sparisjóður Vestfirðinga sameinuðust í árslok 2007 og lét Angantýr þá af störfum sem sparisjóðsstjóri í Sparisjóði Vestfirðinga og tók við starfi svæðisstjóra. Geirmundur mun starfa áfram hjá Sparsjóðnum næstu vikur, samhliða nýjum Sparisjóðsstjóra. Geirmundur hefur starfað samfleytt hjá Sparisjóðnum í Keflavík í 44 ár, eða frá árinu 1965. Honum er þökkuð góð störf í þágu sparisjóðsins. |
|||
|