|
||||||||||||||||||
2017-03-31 18:07:43 CEST 2017-03-31 18:07:43 CEST REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarREITIR: Endurnýjun samnings um viðskiptavaktReitir fasteignafélag hf. hefur í dag endurnýjað samning sinn við Íslandsbanka um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af Reitum sem skráð eru á Aðallista Nasdaq á Íslandi. Eldri samningur aðila er frá 2015. Samningurinn er í samræmi við ákvæði 116. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007 og kveður hann á um að Íslandsbanki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf félagsins í viðskiptakerfi Nasdaq á Íslandi. Fjárhæð kaup- og sölutilboða, að nafnvirði, skal vera að lágmarki í samræmi við neðangreinda töflu þar sem gengi félagsins á markaði stýrir fjárhæð tilboða.
Tilboð skulu endurnýjuð eins fljótt og unnt er, þó ávallt innan 10 mínútna eftir að þeim er tekið að fullu. Íslandsbanki tryggir að verðbil milli kaup- og sölutilboða sem sett eru fram í viðskiptavakt nemi að hámarki 1,5% og að frávik þeirra frá síðasta viðskiptaverði sama dags sé ekki meira en 3%. Eigi Íslandsbanki viðskipti með bréf félagsins fyrir 200.000.000 ISK að markaðsvirði eða meira í sjálfvirkri pörun („automatch“) innan dags, sem fer um veltubók Íslandsbanka (eigin viðskipti bankans), falla niður skyldur um hámarksmun kaup- og sölutilboða innan þess dags. Samningurinn er ótímabundinn og uppsegjanlegur af beggja hálfu. Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 575 9000 eða 669 4416. |
||||||||||||||||||
|