2014-10-23 18:04:10 CEST

2014-10-23 18:05:10 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
HB Grandi hf. - Fyrirtækjafréttir

HB Grandi hf. – Viðræður um sölu á eignarhlut í Stofnfiski hf.


HB Grandi hefur ákveðið að ganga til viðræðna við ákveðinn fjárfesti um
hugsanlega sölu á eignarhluta félagsins í Stofnfiski hf. 

Stofnfiskur hf. er stærsti framleiðandi á Íslandi á laxahrognum og er
fyrirtækið auk þess leiðandi í kynbótarannsóknum fyrir fiskeldi. 

Eignarhlutur HB Granda hf. í Stofnfiski hf. nemur 64,94% af hlutafé félagsins
og var bókfært verð eignarhlutarins, samkvæmt ársreikningi HB Granda vegna
ársins 2013, skráð 7,1 milljónir evra í árslok 2013. 

Ekki er hægt að áætla á þessum tímapunkti hversu lengi viðræður munu standa
yfir en viðræðurnar eru bundnar nokkrum skilyrðum og fyrirvörum. Félagið mun
veita frekari upplýsingar eftir því sem viðræðum vindur fram. 



Nánari upplýsingar veitir:

Vilhjálmur Vilhjálmsson,

forstjóri HB Granda,

sími: 858 1007