2014-10-23 21:10:15 CEST

2014-10-23 21:11:17 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Ársreikningur

Össur - Þriðji ársfjórðungur 2014


Meginatriði á þriðja ársfjórðungi 2014
  * Hagnaður jókst um 26% milli ára. Hagnaðurinn nam 16 milljónum Bandaríkjadala
    eða 13% af sölu, samanborið við 13 milljónir Bandaríkjadala og 12% af sölu á
    þriðja ársfjórðungi 2013.
  * Sala nam 127 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 105 milljónir
    Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi 2013. Söluvöxtur var 21%, þar af 6%
    innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  * Sala á spelkum og stuðningsvörum jókst um 19% samanborið við þriðja
    ársfjórðung 2013, þar af var innri vöxtur 0%, hvort tveggja mælt í
    staðbundinni mynt.
  * Sala á stoðtækjum jókst um 23% samanborið við þriðja ársfjórðung 2013, þar
    af var innri vöxtur 15%, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  * Framlegð nam 81 milljón Bandaríkjadala eða 64% af sölu, samanborið við 65
    milljónir Bandaríkjadala og 62% af sölu á þriðja ársfjórðungi 2013.
  * EBITDA jókst um 30% og nam 29 milljónum Bandaríkjadala sem er 23% af sölu,
    samanborið við 22 milljónir Bandaríkjadala og 21% af sölu á þriðja
    ársfjórðungi 2013.
  * Handbært fé frá rekstri nam 33 milljónum Bandaríkjadala eða 26% af sölu,
    samanborið við 24 milljónir Bandaríkjadala og 23% af sölu á þriðja
    ársfjórðungi 2013.

Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2014

Vegna  mikils  söluvaxtar  og  góðrar  arðsemi  í  ársfjórðungnum  hefur félagið
endurskoðað  áætlun  fyrir  árið  2014. Endurskoðuð  áætlun  fyrir  árið 2014 er
eftirfarandi:
  * Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 18-19% (var áður 16-18%)
  * Innri söluvöxtur á bilinu 4-5%, mælt í staðbundinni mynt (var áður 3-4%)
  * EBITDA framlegð sem hlutfall af sölu á bilinu 20-21% (var áður 19-20%)
  * Fjárfestingar (CAPEX) á bilinu 2,5-3,5% af sölu (óbreytt)
  * Virkt skatthlutfall um 26% (óbreytt)

Jón Sigurðsson, forstjóri:"Við  erum  mjög  ánægð  með  góða  arðsemi  á  þessum  ársfjórðungi og erum með
sterkasta  sjóðstreymi sem við höfum  séð hingað til. Sala  á stoðtækjum er mjög
góð  á öllum okkar  helstu mörkuðum og  í helstu vöruflokkum.  Sala á spelkum og
stuðningsvörum  er í takti við  væntingar okkar. Við höfum  lagt aukna áherslu á
bætta  arðsemi  af  vöruframboði  okkar  og  einbeitum  okkur  að hágæðavörum og
vörunýjungum sem skila nú jákvæðum niðurstöðum."

Símafundur föstudaginn 24. október 2014 og morgunverðarfundur miðvikudaginn 29.
október 2014

Símafundur föstudaginn 24. október kl. 10:00

Símafundur   verður  haldinn  föstudaginn  24. október  kl.  10:00 þar  sem  Jón
Sigurðsson,   forstjóri,   og   Sveinn   Sölvason,  fjármálastjóri,  munu  kynna
niðurstöður  ársfjórðungsins.  Fundurinn  fer  fram  á  ensku.  Innhringinúmer á
símafundinn er 800-7219.

Morgunverðarfundur miðvikudaginn 29. október kl. 8:30

Félagið  býður  jafnframt  til  morgunverðarfundar  á Íslandi miðvikudaginn 29.
október  kl.  8:30 þar  sem  Jón  Sigurðsson,  forstjóri,  og  Sveinn  Sölvason,
fjármálastjóri,  munu  kynna  niðurstöður ársfjórðungsins. Morgunverðarfundurinn
verður  haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi 5, 4. hæð. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á netfangið mottaka@ossur.com.

[HUG#1865399]