|
|||
2013-04-12 01:06:40 CEST 2013-04-12 01:06:55 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - Niðurstöður hluthafafundaNiðurstöður aðalfundar VodafoneNý stjórn var kjörin á aðalfundi Vodafone (Fjarskipta hf.) sem haldinn var í dag. Stjórnina skipa Anna Guðný Aradóttir, Erna Eiríksdóttir, Heiðar Már Guðjónsson, Hildur Dungal og Hjörleifur Pálson. Sá síðastnefndi var kjörinn stjórnarformaður á fyrsta fundi nýrrar stjórnar, sem haldinn var strax að loknum aðalfundinum, og Hildur Dungal varaformaður stjórnar. Varamenn í stjórn eru þau Agla Elísabet Hendriksdóttir og Erlendur Steinn Guðnason. Í viðhengi er að finna ítarlegar upplýsingar um helstu niðurstöður aðalfundarins. [HUG#1692564] |
|||
|