2017-08-30 18:22:53 CEST

2017-08-30 18:22:53 CEST


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Þessi tilkynning hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að skoða leiðrétta tilkynningu

Íslenska Enska
Íbúðalánasjóður - Ársreikningur

Afkoma í takt við væntingar


Aukin gæði lánasafns, lækkun rekstrarkostnaðar og aukin verkefni á sviði húsnæðismála

 

  • Rekstrarafgangur Íbúðalánasjóðs nam 614 milljónum króna
  • Eiginfjárhlutfall er 7,8% sem er hæsta hlutfall frá stofnun sjóðsins
  • Útlán í vanskilum eru 2,4% og minnka úr 4,8% á milli ára
  • Launakostnaður lækkar um 22% á milli ára

 

Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir árið 2017 var staðfestur af stjórn sjóðsins í dag. Rekstrarniðurstaða tímabilsins var jákvæð sem nemur 614 milljónum króna. Eiginfjárhlutfall sjóðsins er nú 7,8% en langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Eigið fé Íbúðalánasjóðs í lok tímabilsins er 24.142 milljónir króna en var 23.528 milljónir króna þann 30. júní 2017. Heildareignir sjóðsins nema 777.323 milljörðum og heildarskuldir nema 753.182 milljörðum.

Rekstur sjóðsins heldur áfram að batna

Hreinar vaxtatekjur frá 1. janúar til 30. júní voru 532 millj. kr. en voru 525 millj. kr. á sama tímabili árið 2016. Rekstrarkostnaður tímabilsins var 843 millj. kr. og lækkar hann um 7% á tímabilinu. Launakostnaður lækkar um 22% og stöðugildum fækkar úr 85 á fyrri helmingi ársins 2016 í 70 í ár. Sjóðurinn hefur tekið við nýjum verkefnum á sviði húsnæðismála og ráðið til þeirra verkefna starfsmenn. Annar rekstrarkostnaður hækkar um 12,8%, fyrst og fremst vegna greiðslna til embættis umboðsmanns skuldara. Íbúðalánasjóður greiðir á tímabilinu 184 millj. kr. til reksturs annarra ríkisstofnana eða sem nemur 22% af öðrum rekstrarkostnaði sjóðsins. Hagræðingaraðgerðir fyrri ára eru nú að fullu komnar til framkvæmda.

 

Afkoma sjóðsins af sölu fullnustueigna var jákvæð á árinu og  skilaði 370 millj. kr. umfram bókfært virði eignanna. Bætt gæði lánasafns höfðu þau áhrif að virðisaukning útlána nam 340 milljónum á tímabilinu. Áhrif einskiptisliða minnkar verulega á milli ára.

 

Hlutfall vaxtaberandi eigna utan lánasafns eykst vegna uppgreiðslna

Í lok tímabilsins voru útlán sjóðsins 544 milljarðar króna og höfðu útlán dregist saman um 34 milljarða króna frá áramótum. Skýrist minnkun lánasafnsins af uppgreiðslum, afskriftum og ráðstöfun séreignarsparnaðar. Uppgreiðslur frá viðskiptavinum skýrast að stórum hluta af aukinni sókn lífeyrissjóða inn á lánamarkaðinn. Ekki hefur verið þörf fyrir útgáfu fjármögnunarskuldabréfa á tímabilinu.

 

Eignir utan lánasafns að meðtöldu lausafé jukust á tímabilinu og eru nú 217 milljarðar króna. Skýrist aukningin fyrst og fremst af  sölu fullnustueigna og uppgreiðslum lána. Helstu áskoranir við stýringu á eignum utan lánasafns eru vaxta- og verðbólguáhætta. Í því ljósi er vert að nefna að ávöxtunarkrafa á skuldabréfamarkaði hefur almennt lækkað í takt við vexti Seðlabankans. Ávöxtunarkrafa verðtryggðra skuldabréfa hefur hins vegar lækkað nokkuð meira og sér í lagi í kjölfar veikingar krónunnar að undanförnu.

 

Þróun vanskila og gæði lánasafns

Útlán í vanskilum nema nú 2,4% af heildarlánum en voru 4,8% á sama tíma árið  2016. Góðar efnahagsaðstæður og skilvirkir innheimtuferlar hafa minnkað áhættu vegna lánasafnsins. Uppreiknaðar eftirstöðvar allra útlána sjóðsins í vanskilum voru 13.600 millj. kr., þar af voru vanskil  2.854 millj. kr. Á afskriftareikningi útlána voru 6.740 millj. kr. í lok tímabilsins og dróst  afskriftareikningur saman um 740 millj. kr. frá áramótum. Um 98,6% af bókfærðu virði lánasafns Íbúðalánasjóðs liggur á veðbili innan við 90% af fasteignamati við lok tímabilsins. Fasteignaverð hefur hækkað umfram verðlag á tímabilinu og vanskil minnkað umtalsvert sem  bætt hefur tryggingarstöðu lánasafnsins.

 

Hermann Jónasson, forstjóri Íbúðalánasjóðs: „Afkoma sjóðsins á fyrri hluta ársins er í takti við væntingar og við sjáum til að mynda í lægri launakostnaði árangur þeirra aðhaldsaðgerða sem gripið hefur verið til hjá sjóðnum. Um leið er jákvætt að sjá hversu vel hefur gengið að innleiða breytt hlutverk sjóðsins en hann gegnir nú mikilvægu hlutverk í að bregðast við stöðunni á húsnæðismarkaði. Innleiðing húsnæðisáætlana hjá sveitarfélögum, veiting stofnframlaga til byggingar hagkvæmra leiguíbúða, greiningarvinna hagdeildar ásamt aukinni upplýsingagjöf til almennings eru á meðal margra nýrra verkefna sjóðsins. Brýnt er að vel takist til við stjórnun húsnæðismála á næstu misserum.  Þær aðgerðir sem stjórnvöld hafa gripið til og falið Íbúðalánasjóði að sinna eru óðum að komast til framkvæmda og það styttist í að við sjáum áhrifin koma fram í auknu framboði hagkvæms húsnæðis og fleiri stuðningsúrræðum fyrir verst settu hópana á húsnæðismarkaði.“

 

Nánari upplýsingar veita Hermann Jónasson forstjóri og Rut Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs, í síma 569 6900.