|
|||
![]() |
|||
2017-08-30 18:56:12 CEST 2017-08-30 18:56:12 CEST REGULATED INFORMATION Skeljungur hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendumSkeljungur: Breytingar á skipulagi félagsins og forstjóri mun láta af störfumÍ kjölfar stefnumótunar stjórnar og stjórnenda hefur stjórn Skeljungs hf. tekið ákvörðun um að breyta skipulagi félagsins. Stefnt er að því að innleiðingu ljúki fyrir árslok. Breytingin er þáttur í því að innleiða nýja stefnu Skeljungs sem leggur aukna áherslu á þróun og framrás félagsins. Markmiðið með breytingunni er að stytta boðleiðir, einfalda og auka skilvirkni við ákvarðanatöku og efla þannig sókn félagsins í átt að nýjum mörkuðum. Breytingin felst í því að í stað þess að íslenski og færeyski hluti Skeljungs séu reknir eins og tvö aðskilin fyrirtæki, verður nú litið á alla samstæðuna sem eina heild. Einn forstjóri mun leiða framkvæmdastjórn félagsins. Skipulagið mun byggja á þremur rekstrarstoðum; Færeyjum, Íslandi og þróun, þ.m.t. alþjóðasölu. Stoðsvið verða m.a. fjármál, samskipti og innkaup. Ekki er gert ráð fyrir að breyting þessi muni hafa umtalsverð áhrif á afkomu Skeljungs til skamms tíma. Hins vegar er búist við að til lengri tíma muni samlegðaráhrif leiða til lægri kostnaðar, með aukinni samvinnu Færeyja og Íslands. Forstjóri félagsins, Valgeir M. Baldursson hefur á þessum tímamótum tilkynnt stjórn að hann gefi ekki kost á sér í starf forstjóra í breyttu skipulagi. Hann hefur boðist til að starfa með stjórninni að undirbúningi breytinganna þar til nýr forstjóri yfir breyttu skipulagi hefur verið ráðinn og vera honum innan handar í framhaldinu. Valgeir M. Baldursson, fráfarandi forstjóri Skeljungs: Þegar ég kom til Skeljungs fyrir átta árum síðan stóðum við frammi fyrir miklum áskorunum í rekstri og starfsemi félagsins. Með samstilltu átaki frábærs starfsfólks tókst okkur að koma félaginu í gegnum þær á afar árangursríkan hátt. Nú er rekstur félagsins mjög góður og félagið á góðum stað fyrir þau verkefni sem framundan eru. Með nýju skipulagi og stefnuáherslum er hins vegar kominn tími á nýjar áskoranir fyrir mig og að aðrir taki við taumunum hjá Skeljungi. Jón Diðrik Jónsson, stjórnarformaður Skeljungs: Valgeir hefur leitt Skeljung í gegnum mikla umbreytingatíma og nú síðast töku hlutabréfa í Skeljungi til viðskipta í Kauphöllinni. Árangur Valgeirs við stjórnvölinn hefur verið óumdeilanlegur. Þá hefur Valgeir lagt grunninn að nýrri stefnu Skeljungs, sem skipulag þetta byggir á, og stjórn telur að muni varða leiðina í átt að nýjum sigrum félagsins. Stjórn Skeljungs þakkar Valgeiri kærlega fyrir sín góðu störf í þágu Skeljungs og óskar honum alls hins besta í framtíðinni. Framundan eru spennandi tímar hjá Skeljungi. Umhverfi félagsins tekur stöðugum breytingum og er það stefna Skeljungs að vera leiðandi í þróun á nýjum lausnum fyrir viðskiptavini sína í þeim umbreytingum sem munu eiga sér stað á næstu árum og áratugum. Nánari upplýsingar veitir; Valgeir M. Baldursson, vmb@skeljungur.is, s: 840-3022 . [] |
|||
|