|
|||
2009-05-29 11:34:09 CEST 2009-05-29 11:35:12 CEST REGULATED INFORMATION Spölur ehf. - Ársreikningur- Árshlutauppgjör 1. október 2008 til 31. mars 2009• Tap Spalar ehf eftir skatta fyrir tímabilið 1. október 2008 til 31. mars 2009 nam kr. 238 m.kr. en tap á tímabilinu 1. október 2007 til 31. mars 2008 nam 169 m.kr. Tap Spalar eftir skatta á öðrum ársfjórðungi félagsins sem er 1. janúar 2009 til 31. mars 2009 nam 93 m.kr. Á sama tíma árið á undan var tap félagsins 146 m.kr. Reikningsár Spalar er 1. október til 30. september ár hvert. Spölur er að fullu í eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. • Veggjald nam 344 m.kr. fyrstu 6 mánuði ársins til samanburðar við 397 m.kr. árið áður sem er 15,4% lækkun. • Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrstu 6 mánuði ársins nam kr. 129 m.kr. og lækkar um rúm 29,5% frá sama tímabili árinu áður þegar hann nam 167 m.kr. Mismunurinn liggur nánast allur í gjaldfærslu á fyrra tímabili á undirbúningskostnaði vegna nýrra ganga, en þeirri vinnu lauk að mestu í september 2008. • Skuldir Spalar ehf aukast úr 4.361 m.kr. þann 30. september 2008 í 4.700 m.kr þann 31. mars 2009 eða um 7,8%. Um uppgjörið Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, segir að umferð og tekjur séu í samræmi við áætlanir félagsins. Gert hafi verið ráð fyrir nokkrum samdrætti í umferð og tekjum, einkum fyrrihluta rekstrarársins. Jafn mikil hækkun reikningslegra gjaldfærslna, einkum vegna hækkunar lána út af vísitöluhækkunum var ekki fyrirséð. Á þessu 6 mánaða tímabili fóru tæplega 792 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu veggjald sem er 6,1% minnkun frá sama tímabili árið áður. Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin fara sífellt lækkandi, bæði að nafnverði og raunverði. Skýringin er sú að fleiri og fleiri viðskiptavinir nýta sér afsláttarmöguleika og veggjaldið hefur lækkað talsvert á síðustu árum. _____________________________________________________________________ Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma 433 5910. |
|||
|