|
|||
2012-05-14 11:30:47 CEST 2012-05-14 11:31:48 CEST REGULATED INFORMATION Arion Bank hf. - FyrirtækjafréttirArion banki hf. lýkur skuldabréfaútboðiArion banki hf. lauk á föstudag, þann 11. maí, fyrsta útboði bankans á sértryggðum skuldabréfum sem eru óverðtryggð. Alls voru seld skuldabréf til fagfjárfesta fyrir 1220 milljónir að nafnvirði í skuldabréfaflokknum Arion CB 15. Stefnt er að því að skuldabréfaflokkurinn verði tekinn til viðskipta á NASDAQ OMX Íslandi nú í maí. Nánari upplýsingar um skráninguna verða kynntar síðar. Skuldabréfin bera 6,50% óverðtryggða vexti og eru á lokagjalddaga árið 2015. Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri Arion banka: „Með útgáfunni nú gefur Arion banki fyrstur banka hér á landi út sértryggð skuldabréf sem eru óverðtryggð. Bankinn hefur sýnt frumkvæði á íbúðalánamarkaði þegar kemur að óverðtryggðum íbúðalánum og kynnt til leiks fjölda nýjunga. Útboðið nú kemur þar í rökréttu framhaldi. Útboðið er enn einn liðurinn í að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans.“ Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, samskiptasviði Arion banka, s: 856 7108, haraldur.eidsson@arionbanki.is. |
|||
|