|
|||
![]() |
|||
2015-04-30 17:35:00 CEST 2015-04-30 17:35:00 CEST REGULATED INFORMATION Vátryggingafélag Íslands hf. - FyrirtækjafréttirVÍS – tilkynning um framkvæmd endurkaupaáætlunarÁ aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf. þann 12. mars 2015 var samþykkt að heimila stjórn, m.a. í formi formlegrar endurkaupaáætlunar, að kaupa á næstu 18 mánuðum allt að 10% af hlutafé félagsins, þ.e. að hámarki kr. 243.848.052 hluti að nafnverði. Stjórn VÍS hefur á grundvelli fyrrgreindrar samþykktar aðalfundar félagsins tekið ákvörðun um framkvæmd endurkaupaáætlunar um kaup á eigin bréfum í þeim tilgangi að lækka útgefið hlutafé þess. Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði kr. 126.903.553 hlutir, en það jafngildir um 5,20% af útgefnu hlutafé félagsins. Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 1.000.000.000 Heimildin gildir fram að aðalfundi félagsins 2016. Endurkaupaáætlunin verður framkvæmd af H.F. Verðbréfum hf. sem tekur allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og tímasetningu kaupanna óháð félaginu. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005. Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verður að hámarki 2.535.647 hlutir sem er 25% af meðaltali daglegra viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í mars 2015. Verð fyrir hvern hlut skal vera að hámarki hæsta verð síðustu óháðu viðskipta eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum sem kaupin fara fram, hvort sem hærra er. Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is. |
|||
|