2015-04-30 17:40:00 CEST

2015-04-30 17:40:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

VÍS - Breyting á skipulagi


Í tengslum við innleiðingu félagsins á nýrri löggjöf um vátryggingafélög sem
taka á gildi 1. janúar 2016 hefur áhættustýringu verið skipt upp til að
aðgreina verkefni og hlutverk tryggingastærðfræðings  annars vegar og
áhættustýringar hins vegar.  Ragnar Þ. Ragnarsson verður forstöðumaður
tryggingastærðfræðistofu og Þórir Óskarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður
áhættustýringar.  Báðir hafa starfað hjá félaginu um árabil og sinnt þessum
starfssviðum sameiginlega. 

Meðfylgjandi er nýtt skipurit félagsins.

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri.