2018-05-22 17:35:00 CEST

2018-05-22 17:35:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íslandsbanki hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

Islandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 24. maí


Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 24. maí 2018.

Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 31. maí 2018.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 24. maí.

Nánari upplýsingar veita:

  • Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.


Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/um-islandsbanka/fjarfestatengsl/hafdu-samband/postlisti/

Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er leiðandi fjármálafyrirtæki á Íslandi með heildareignir sem nema 1.036 ma. kr. (8,3 milljarðar evra) og með 25-50% markaðshlutdeild á innanlandsmarkaði. Saga Íslandsbanka spannar 140 ár af þjónustu við lykilatvinnuvegi þjóðarinnar en á þessum tíma hefur bankinn byggt upp sérþekkingu á sviði ferðaþjónustu, sjávarútvegs, orku og þjónustu við olíu- og gasiðnað. Framtíðarsýn Íslandsbanka er að vera #1 í þjónustu og vinna þrjú viðskiptasvið þétt saman til að tryggja góð sambönd við viðskiptavini bankans. Til að koma enn betur til móts við þarfir viðskiptavina, þá hefur Íslandsbanki þróað margvíslegar nýjar stafrænar lausnir s.s. öpp fyrir bankaþjónustu, Kreditkort og Kass. Á sama tíma rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið með 14 útibú staðsett á lykilstöðum um land allt. Fimmta árið í röð á Íslandsbanki ánægðustu viðskiptavinina á bankamarkaði samkvæmt niðurstöðu Íslensku ánægjuvogarinnar og þá var bankinn einnig útnefndur besti bankinn á Íslandi árið 2017 af tímaritinu The Banker. Íslandsbanki hefur BBB+/A-2 lánshæfismat frá S&P Global Ratings og BBB/F3 frá Fitch Ratings og er eini íslenski bankinn með lánshæfismat frá tveimur alþjóðlegum lánshæfismatsfyrirtækjum. www.islandsbanki.is

Fyrirvari
Framangreind fréttatilkynning gæti vísað til spár um framtíðarhorfur sem er háð áhættu- og óvissuþáttum og getur þýtt að raunverulegur árangur verði umtalsvert frábrugðinn því sem spáð er í þessari fréttatilkynningu. Íslandsbanki hf. hefur ekki skyldu til að, og mun ekki, uppfæra þessar spár um framtíðarhorfur félagsins til að endurspegla atburði og aðstæður sem eiga sér stað eftir útgáfu þessarar fréttatilkynningar. Það er ábyrgð fjárfestis að reiða sig ekki seinna meir á spár um framtíðarhorfur sem eru settar fram í þessari  fréttatilkynningu  þar sem þær eiga eingöngu við á þeim tíma sem hún er gefin út.  Spár um framtíðarhorfur gefa ekki áreiðanlega vísbendingu um framtíðarárangur og eru allar yfirlýsingar um framtíðarhorfur félagsins fullgildar í heild sinni með tilliti til þessa fyrirvara.