2014-10-20 12:26:44 CEST

2014-10-20 12:27:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Tryggingamiðstöðin hf. - Breytingar á eigin hlutum félags

Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.


Í 42. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 1.500.000 eigin hluti fyrir
35,3 m.kr. eins og hér segir: 

Dagsetning  Tími     Keyptir    Viðskiptav   Kaupverð    Hlutir í eigu TM eftir 
                      hlutir       erð                         viðskipti        
--------------------------------------------------------------------------------
15.10.2014  14:38    500.000       23,55    11.775.000         13.500.000       
--------------------------------------------------------------------------------
15.10.2014  14:41    500.000       23,55    11.775.000         14.000.000       
--------------------------------------------------------------------------------
16.10.2014  10:05    500.000       23,40    11.700.000         14.500.000       
--------------------------------------------------------------------------------
Samtals             1.500.000               35.250.000                          
--------------------------------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til
Kauphallar 30. apríl 2014. 

TM hefur nú keypt samtals 14.500.000 hluti í félaginu sem samsvarar 69,0% af
þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð
hinna keyptu hluta nemur samtals 369,0 milljónum króna. TM á nú samtals 1,91%
af heildarhlutafé félagsins. 

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og
fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd
endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en
31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr.
630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik. 



Nánari upplýsingar veitir

Sigurður Viðarsson, forstjóri

s: 515-2609

sigurdur@tm.is