2013-08-09 13:13:37 CEST

2013-08-09 13:13:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Samingur vegna nýs sæstrengs Emerald Networks


Vodafone (Fjarskipti hf.) og Emerald Networks hafa undirritað samning um afnot
af nýjum sæstreng sem nefnist Emerald Express og ráðgert er að leggja milli
Bandaríkjanna og Evrópu með tengingu við Ísland. Emerald Networks ráðgerir að
leggja strenginn á næstunni en Vodafone stefnir að því að nýta hann til
gagnaflutninga til og frá landinu í a.m.k. 15 ár frá og með haustinu 2014. Með
tilkomu strengsins margfaldast gagnaflutningsgeta Vodafone en þörfin fyrir
aukinn gagnaflutningshraða og meiri afköst er sífellt að aukast.

Vodafone er fyrsta fjarskiptafyrirtækið hér á landi sem semur um afnot af
strengnum.
Um forsögu samningsins er vísað í fyrri fréttatilkynningar Vodafone til
kauphallar dagsettar 18. febrúar 2013 og 27. mars 2013.

Um Emerald Express sæstrenginn
Emerald Express sæstrengurinn verður afkastamesta og hraðasta
gagnaflutningstengingin á milli Norður Ameríku og Evrópu og mun hann jafnframt
tengjast við Ísland. Strengurinn byggir á nýrri tækni sem auðveldar uppfærslur á
afkastagetu hans síðar. Heildarlengd strengsins er yfir 6.700 km og þar af er
leggurinn sem lagður verður til Íslands um 1.300 km. Sæstrengurinn mun koma á
land í nágrenni við Grindavík. Emerald Networks hefur samið við bandaríska
fyrirtækið TE SubCom um að leggja strenginn. Félagið hefur mikla reynslu af
lagningu sæstrengja og hefur þegar lagt um 490 þúsund kílómetra af
neðarsjávarköplum sem jafngildir tólf sinnum ummáli jarðarinnar við miðbaug.

Helstu atriði samnings
Fyrir 15 ára afnotarétt (IRU) af strengnum og kaup á búnaði greiðir Vodafone
stofnkostnað en meginþungi þeirrar fjárfestingar fellur til á þriðja
ársfjórðungi 2014 og þriðja ársfjórðungi 2015. Stofnkostnaður verður eignfærður
og afskrifaður á líftíma samningsins. Auk þessa greiðir Vodafone árlegan kostnað
sem gjaldfærður verður í gegnum rekstur félagsins. Samningurinn tryggir Vodafone
a.m.k. 15 ára afnot af strengnum. Vodafone fær aðgang að strengnum strax við
gangsetningu hans og þá verða fyrstu greiðslur inntar af hendi. Fjárhæðir
samningsins eru trúnaðarmál milli samningsaðila.

Fjárhagsleg áhrif á Vodafone
Miklar líkur eru á því að áhrif samningsins á EBITDA hagnað og hagnað félagsins
verði jákvæð en ekki er þó hægt að segja nákvæmlega til um hver þau verða.
Áhrifin munu ráðast af þeim viðbótartekjum sem Vodafone mun hafa af
gagnaflutningum á samningstímanum og því rekstrarhagræði sem skapast af
samningnum.

Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone:"Við erum ákaflega ánægð með þennan samning og ég vil nota tækifærið og þakka
þeim sem hafa unnið að samningagerðinni um langa hríð fyrir ánægjulegt og
árangursríkt samstarf. Ég er vongóður um að aðkoma Vodafone að verkefninu tryggi
framgang þess og eftir u.þ.b. eitt ár verði Vodafone farið að flytja gögn til og
frá landinu gegnum nýja strenginn. Samningurinn tryggir aukna afkastagetu
Vodafone, aukið hagræði til framtíðar litið og við reiknum með jákvæðum áhrifum
á reksturinn. Annars má segja að lagning nýs sæstrengs til Íslands sé söguleg.
Hún mun auka samkeppnishæfni landsins og það eru hagsmunir allra Íslendinga að
svo verði."

[HUG#1722248]