2009-08-27 18:31:11 CEST

2009-08-27 18:32:12 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
N1 - Ársreikningur

- 6 mánaða uppgjör 2009


Hagnaður N1 hf. fyrir tímabilið 01.01.2009 - 30.06.2009 er 474,2 millj. kr.
eftir skatta. 
Veltufé frá rekstri nam 1.155 millj. kr. en var 1.148 millj. kr. fyrir sama
tímabil á fyrra ári. 

Eigið fé félagsins er rúmlega 6,8 milljarðar þann 30.06.2009.


Lykilstærðir í þús. kr: Sjá viðhengi


Árshlutareikningur N1 hf 30.06.2009
Árshlutareikningur N1 hf. þann 30.06.2009 hefur verið staðfestur af stjórn
félagsins og forstjóra.  Árshlutareikningurinn er  byggður á alþjóðlegum
reikningsskilastöðlum (IFRS) og hefur samanburðarfjárhæðum verið breytt til
samræmis við nýjar reikningsskilareglur. 


Rekstur

Rekstrartekjur félagsins nema 17.215 millj. kr. samanborið við 19.706 millj.
kr. fyrir sama tímabil árið 2008.  Hagnaður fyrir afskriftir og leigugjöld
nemur 1.897 millj kr. samanborið við 2.051 millj fyrir sama tímabil ári 2008.  
Rekstrarhagnaður tímabilsins nam 474,2 millj. kr á móti 98,3 millj. kr. fyrir
sama tímabil árið áður. Fjármagnsliðir eru neikvæðir um 587,8 millj. kr. og
voru einnig neikvæðir um 1.281,4 millj. kr. fyrir sama tímabil árið 2008. 

Eignir

Bókfært verð eigna félagsins í lok tímabilsins nam 26.896 millj. kr. samanborið
við 25.298 millj. kr. í árslok 2008.  Fastafjármunir standa nánast í stað á
tímabilinu og nema 12.290 millj. kr. lok þess.  Veltufjármunir hafa aukist úr
13.039 millj. kr.í 14.607 millj. kr. 
Eigið fé

Eigið fé þann 30. júní 2009 nam 6.835 millj. kr. samanborið við 6.361 millj.
kr. þann 31.12.2008. 
Skuldir

Í lok tímabilsins námu heildarskuldir og skuldbindingar 20.061 millj. kr, þar
af námu langtímaskuldir 7.161 millj. kr. 

Staða og horfur

Rekstrarhorfur út árið eru áfram erfiðar vegna óstöðugleika í efnahagsmálum. 
Kjarnastarfsemi félagsins hefur gengið vel á árinu og reiknað er með að afkoma
ársins verði betri en árið 2008. 


Nánari upplýsingar veita Hermann Guðmundsson forstjóri og Elías Bjarni
Guðmundsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 440 1000