2015-06-22 17:15:52 CEST

2015-06-22 17:16:54 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Landsbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

Landsbankinn hf. stækkar flokk sértryggðra skuldabréfa


Landsbankinn lauk í dag sölu á LBANK CBI 22, verðtryggðum flokki sértryggðra
skuldabréfa sem skráður er á Nasdaq Iceland. Útgáfan var stækkuð um 3.000 m.kr.
á ávöxtunarkröfunni 3,30%. Áður hefur Landsbankinn gefið út 1.760 m.kr. í sama
flokki og nemur heildarstærð flokksins því 4.760 m.kr. eftir viðbótarútgáfuna. 

Stefnt er að því að bréfin verði tekin til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 26.
júní 2015 en Straumur fjárfestingabanki hf. mun sinna viðskiptavakt. 

Sértryggðu skuldabréfin eru gefin út með leyfi frá Fjármálaeftirlitinu með
vísan í lög nr. 11/2008 og Reglur nr. 528/2008. Nánari upplýsingar um
skuldabréfin og tryggingasafnið má finna á vefsvæði fjármögnunar bankans,
www.landsbankinn.is/sertryggd-skuldabref. 



Nánari upplýsingar:

Kolbrún Guðlaugsdóttir, ir@landsbankinn.is 410 4014 eða 862 3679