|
|||
2011-12-20 10:27:14 CET 2011-12-20 10:27:51 CET REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : meðferð á viðskiptavildReykjavík, 20. desember 2011: Í tengslum við samruna Íslandsbanka hf. við Byr hf. hyggst Íslandsbanki færa niður eignir frá Byr í stofnefnahagsreikningi sameinaðs banka í samræmi við verðmatsaðferðir bankans. Við þessa niðurfærslu verður til viðskiptavild vegna mismunar á eignum og skuldum í stofnefnahag og er sú viðskiptavild byggð á væntum áhrifum samrunans á framtíðar sjóðstreymi bankans. Stefna bankans er að lágmarka óefnislegar eignir í efnahagsreikningi og hefur stjórn bankans ákveðið að afskrifa því stærstan hluta viðskiptavildarinnar strax á árinu 2011. Gera má ráð fyrir að þessi aðgerð hafi í för með sér gjaldfærslu á fjórða ársfjórðungi 2011 og hefur þar með áhrif á afkomu þess tímabils. Þessi einskiptiskostnaður hefur þó ekki áhrif á sjóðsstreymi né lausafjárstöðu bankans. Eiginfjárhlutfall bankans verður eftir sem áður vel yfir 16% lágmarkskröfu Fjármálaeftirlitsins. Þá fellur þessi aðgerð að þeim áætlunum sem bankinn gerði fyrir samrunann við Byr hf., en eins og áður hefur komið fram gerir Íslandsbanki ráð fyrir töluverðum samlegðaráhrifum af sameiningu fyrirtækjanna. Frekari upplýsingar veitir: Sigrún Hjartardóttir, fjárfestatengsl, sími. 844-4748, netfang: sigrun.hjartardottir@islandsbanki.is [HUG#1572635] |
|||
|