2011-12-16 17:01:57 CET

2011-12-16 17:02:58 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Fyrirtækjafréttir

Endurútreikningur gengistryggðra lána


Ráðstöfun endurgreiðslu

Í viðauka við lýsingu Haga hf., sem gefinn var út 9. desember sl., voru
upplýsingar um bætta fjárhagsstöðu félagsins vegna endurútreiknings Arion banka
á gengistryggðum lánum, sem gerð höfðu verið upp árið 2009.
Endurútreikningurinn er á grundvelli ákvæðis 18. gr. laga nr. 38/2001 um vexti
og verðtryggingu. 



Á stjórnarfundi Haga hf. þann 16. desember var ákveðið að ráðstöfun
endurgreiðslunnar yrði nýtt til niðurgreiðslu á láni félagsins hjá Arion banka
eða samtals kr. 514.282.295. 







Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri Haga hf., í síma 530-5500.