|
|||
2009-08-31 15:27:58 CEST 2009-08-31 15:28:59 CEST REGULATED INFORMATION Íbúðalánasjóður - ÁrsreikningurÍbúðalánasjóður - Árshlutareikningur - 6 mán. 2009Árshlutareikningur Íbúðalánasjóðs fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2009 var staðfestur og undirritaður af stjórn sjóðsins í dag, 31. ágúst 2009. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS) um árshlutareikninga, IAS 34. Hagnaður var af rekstri sjóðsins á fyrstu sex mánuðum ársins að fjárhæð 463 millj. kr. skv. rekstrarreikningi. Eigið fé hans í lok júní nam 13.748 millj.kr. skv. efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sjóðsins, sem reiknað er skv. ákvæðum í reglugerð nr. 544/2004 um Íbúðalánasjóð, er 4,3%. Hlutfallið er reiknað með sama hætti og eiginfjárhlutfall fjármálafyrirtækja. Langtímamarkmið sjóðsins er að hlutfallið sé yfir 5,0%. Eins og greint er frá í skýringu nr. 8 á sjóðurinn innlán hjá SPRON og Straumi -Burðarás fjárfestingarbanka hf. Ágreiningur er uppi um skilgreiningu þeirra innlána. Ef þessi innlán verða skilgreind sem almennar kröfur má reikna með að tap sjóðsins geti numið um 3,5 milljörðum kr. sé miðað við áætlanir slitastjórnar félaganna um endurgreiðsluhlutfall á ótryggðum kröfum. Nánari upplýsingar veita Guðmundur Bjarnason, Ívar Ragnarsson og Ásta H. Bragadóttir í síma 569 6900. |
|||
|