|
|||
![]() |
|||
2012-12-10 16:31:00 CET 2012-12-10 16:31:05 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtboð ríkisvíxla RIKV 13 0315 OG RIKV 13 0618Fimmtudaginn 13. desember kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins á ríkisvíxlum í flokkunum RIKV 13 0315 og RIKV 13 0618 sem eru með gjalddaga 15. mars og 18. júní 2013. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt til að samþykkja öll tilboð sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu, en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. Greiðslu- og uppgjörsdagur er mánudagur 17. desember 2012. Sótt verður um að RIKV 13 0618 verði tekinn til viðskipta í NASDAQ OMX á Íslandi þriðjudaginn 18. desember 2012. |
|||
|