2008-02-29 18:41:21 CET

2008-02-29 18:42:19 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
FL GROUP hf. - Boðun hluthafafundar

Aðalfundur FL Group verður haldinn 11. mars 2008


Aðalfundur FL Group verður haldinn þriðjudaginn 11. mars 2008 í Salnum,
Tónlistarhúsi Kópavogs,Hamraborg 6 Kópavogi og hefst fundurinn kl. 17:00. 



Sérstaklega er bent á að þeir sem hyggjast gefa kost á sér til setu í stjórn
skulu tilkynna það skriflega til stjórnar félagsins að minnsta kosti fimm
sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar. Þeir einir eru kjörgengir sem þannig hafa
gefið kost á sér. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns
frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs, upplýsingar um aðalstarf, önnur
stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig
upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila
félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. 

Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á aðalfundi skulu vera komnar í hendur
stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. 

Sjá auglýsingu í viðhengi