2011-04-26 17:32:57 CEST

2011-04-26 17:33:58 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Útboð verðtryggðra og óverðtryggðra ríkisbréfa RIKS 21 0414 og RIKB 31 0124


Föstudaginn 29. apríl kl. 11:00 fer fram útboð hjá Lánamálum ríkisins með
tilboðsfyrirkomulagi. 

Boðin verða til sölu verðtryggð bréf í flokknum RIKS 21 0414 og óverðtryggð
bréf í flokknum RIKB 31 0124.  Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður
tilkynnt að loknu útboði. 

Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð
sem berast, að hluta eða hafna þeim öllum.  Einungis aðalmiðlurum
ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í útboðinu en þeir annast einnig
tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að
nafnvirði. 

Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast aðalmiðlurum á
sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ræður söluverðinu. Að
öðru leyti er vísað í útboðsskilmála sem fylgja þessari frétt. 

Eftir að niðurstöður útboðs ríkisbréfa liggja fyrir munu Lánamál ríkisins bjóða
jafnvirði 10%, reiknuð af nafnverði þess sem selt var í útboðinu til
aðalmiðlara á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 3.
maí 2011. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. 

Greiðslu- og uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 4. maí 2011.