|
|||
2013-03-01 16:29:47 CET 2013-03-01 16:30:53 CET REGULATED INFORMATION Byggðastofnun - ÁrsreikningurÁrsreikningur 2012Ársreikningur Byggðastofnunar 2012 Ársreikningur Byggðastofnunar fyrir árið 2012, var staðfestur af stjórn stofnunarinnar 1. mars 2013. Um stofnunina gilda lög um Byggðastofnun nr. 106/1999 og reglugerð nr. 347/2000. Hlutverk Byggðastofnunar er að vinna að eflingu byggðar og atvinnulífs á landsbyggðinni. Í samræmi við hlutverk sitt vinnur stofnunin að undirbúningi, skipulagi og fjármögnun verkefna og veitingu lána með það að markmiði að treysta byggð, efla atvinnu og stuðla að nýsköpun í atvinnulífi. Fjármögnun verkefna skal eftir föngum vera í samstarfi við aðra. Byggðastofnun fylgist með þróun byggðar í landinu, m.a. með gagnasöfnun og rannsóknum. Stofnunin skipuleggur og vinnur að atvinnuráðgjöf í samstarfi við atvinnuþróunarfélög, sveitarfélög og aðra. Stofnunin getur gert eða látið gera áætlanir um þróun byggðar og atvinnulífs í þeim tilgangi að treysta búsetu og atvinnu í byggðum landsins. Stofnunin getur einnig tekið þátt í gerð svæðisskipulags samkvæmt skipulagslögum. Samkvæmt rekstrarreikningi nam tap af rekstri stofnunarinnar 152,8 milljónum króna á árinu 2012. Eigið fé í árslok samkvæmt efnahagsreikningi var 2.113,5 milljón króna Eiginfjárhlutfall samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki var 12,55%. Ákvæði laga um fjármálafyrirtæki segja til um að eigið fé skuli að lágmarki vera 8% af áhættugrunni og uppfyllti stofnunin því ákvæði laga þar um í lok árs 2012. Alþingi samþykkti í fjárlögum 2012 heimild til að efla eigið fé Byggðastofnunar um allt að 2.000 milljónir króna. Af því framlagi voru 1.750 milljónir króna greiddar til stofnunarinnar í janúar 2012 og eftirstöðvarnar í byrjun janúar 2013. Fyrir Hæstarétti Íslands og Héraðsdómi Norðurlands vestra eru nú rekin tvö mál þar sem tekist er á um lögmæti erlendra lána stofnunarinnar. Það er álit Byggðastofnunar og lögmanna hennar að skuldabréf stofnunarinnar séu lán í erlendri mynt en ekki ólögmæt gengislán. Ekki hafa verið færð sérstök varúðarframlög vegna þessara mála. Nánari er getið um þessi mál í skýringu nr. 17 með ársreikningnum. Helstu niðurstöður úr ársreikningi Byggðastofnunar fyrir árið 2012: -- Tap stofnunarinnar á árinu nam 152,8 milljónum króna en til samanburðar var tapið 2011, 236 milljónir króna. -- Hreinar vaxtatekjur voru jákvæðar um 594 milljónir króna samanborið við 640 milljónir króna hreinar vaxtatekjur á árinu 2011. -- Rekstrartekjur námu 193 milljónir og lækkuðu um 126 milljónir króna sem skýrist aðallega af 155 milljón króna neikvæðum gengismun. -- Almenn rekstrargjöld, styrkir og framlög til atvinnuþróunarfélaga námu 488 milljónum króna. -- Framlög í afskriftarreikning útlána, og matsbreyting hlutafjár nam 445 milljónum en var til samanburðar 711 milljónir króna árið 2011. -- Handbært fé frá rekstri var 639 milljónir króna. -- Endanlega töpuð útlán námu 1.325 milljónum króna. -- Eignir námu 16.738 milljónum króna og hafa lækkað um 912 milljónir króna frá árinu 2011. Þar af voru útlán 13.422 milljónir króna. -- Lántökur námu 14.550 milljónir króna og hafa lækkað um 2.588 milljónir króna frá árinu 2011. -- Veittar ábyrgðir utan efnahagsreiknings námu 216 mkr. -- Eiginfjárhlutfall skv. lögum um fjármálafyrirtæki er 12,55% en skal að lágmarki vera 8% af eiginfjárgrunni. Um ársreikninginn Í árslok var eiginfjárhlutfall 12,55% eins og að ofan greinir. Ákvæði laga um fjármálafyrirtæki segja til um að eigið fé skuli að lágmarki vera 8% af áhættugrunni og uppfyllti stofnunin því ákvæði laga þar um í lok árs 2012. Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Aðalsteinn Þorsteinsson, forstjóri Byggðastofnunar í síma 455 5400 eða á netfanginu adalsteinn@byggdastofnun.is |
|||
|