2012-06-07 14:37:54 CEST

2012-06-07 14:38:56 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Íslandssjóðir hf. - Fyrirtækjafréttir

Skipulags- og áherslubreytingar hjá Íslandssjóðum


Íslandssjóðir hf. og VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, hafa gengið frá
samkomulagi um að Íslandssjóðir taki yfir eignastýringu verðbréfasafna fyrir
einkabankaþjónustu VÍB. Breytingarnar eru liður í almennum skipulagsbreytingum
á starfsemi félagsins í ljósi aukinna umsvifa þess. 

Sú starfseining sem sinnt hefur þessari þjónustu innan VÍB flyst yfir og
sameinast safnastýringu Íslandssjóða. Samhliða verða gerðar breytingar á
starfsemi Íslandssjóða sem felast í að efla og skerpa stefnu lykileininga
félagsins, sjóðastýringar og safnastýringar. Á sama hátt verður hlutverk
framkvæmdastjóra skýrt og eflt við að sinna innra eftirliti, gæðamálum,
samskiptum við eftirlitsaðila og stjórn og stefnumótandi verkefnum. 

Í tengslum við breytingarnar hefur Haraldur Örn Ólafsson verið ráðinn
framkvæmdastjóri Íslandssjóða hf. Haraldur Örn er hæstaréttarlögmaður og hefur
sérhæft sig í löggjöf fjármagnsmarkaðarins. Hann hefur víðtæka reynslu af
störfum á fjármálamarkaði og hefur síðustu ár starfað á lögfræðisviði
Íslandsbanka þar sem hann hefur unnið náið með yfirstjórn Íslandssjóða sem
lögfræðilegur ráðgjafi. Áður starfaði hann sem sérfræðingur hjá
Viðskiptaráðuneytinu á sviði fjármagnsmarkaðar þar sem hann m.a. var formaður í
vinnuhóp sem vann að frumvarpi til núgildandi verðbréfaviðskiptalaga og
kauphallarlaga. Þá hefur hann meðfram störfum sínum hjá Íslandsbanka setið í
nefndum og starfshópum um breytingar á fjármálalöggjöfinni svo sem lögum um
verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði. 

Haraldur Örn mun taka við starfi framkvæmdastjóra félagsins í september
næstkomandi. Núverandi framkvæmdastjóri, Agla E. Hendriksdóttir mun gegna
starfi framkvæmdastjóra fram að þeim tíma en mun svo leiða
sjóðastýringarstarfsemi félagsins. Hún mun jafnframt verða staðgengill
framkvæmdastjóra. 

Nánari upplýsingar veitir Steinunn Bjarnadóttir, stjórnarformaður félagsins í
síma: 440 4926