2008-09-22 08:55:00 CEST

2008-09-22 08:56:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kaupþing banki hf. - Fyrirtækjafréttir

Hans hátign Sheikh Mohammed Bin Khalifa Al-Thani kaupir 5% hlut í Kaupþingi



Q Iceland Finance ehf., dótturfélag í eigu Q Iceland Holding ehf.,
sem er eignarhaldsfélag hans hátignar Sheikh Mohammed Bin Khalifa
Al-Thani, hefur keypt 5,01% hlut í Kaupþingi banka hf. Q Iceland
Finance keypti alls 37,1 milljón hluta á genginu 690 kr. á hlut og
verður þar með þriðji stærsti hluthafi bankans.

Hans hátign Sheikh Mohammed er í konungsfjölskyldunni sem verið hefur
við völd í Qatar frá því á nítjándu öld.

Hans hátign Sheikh Mohammed:"Við höfum fylgst náið með Kaupþingi í nokkurn tíma og teljum þetta
góða fjárfestingu. Staða Kaupþing er sterk og við höfum trú á stefnu
og stjórnendum bankans, enda hefur Kaupþing náð góðum árangri við þær
erfiðu aðstæður sem nú eru á markaðnum og sýnt fram á getu til þess
að breytast og laga sig að nýjum veruleika í bankastarfsemi. Við
lítum á hlut okkar í Kaupþingi sem langtímafjárfestingu og hlökkum
til að eiga góð samskipti við stjórnendur bankans."

Sigurður Einarsson, stjórnarformaður:"Okkur er mikil ánægja að bjóða hans hátign Sheikh Mohammed Bin
Khalifa Al-Thani velkominn í hluthafahóp Kaupþings. Það hefur lengi
verið stefna okkar að laða nýja fjárfesta að bankanum og því er
ánægjulegt að sjá að við höfum nú náð að breikka hluthafahópinn enn
frekar. Við hlökkum til þess að vinna með hans hátign Sheikh Mohammed
í framtíðinni."Frekari upplýsingar veitir:
Jónas Sigurgeirsson, Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112