|
|||
2013-08-09 13:13:37 CEST 2013-08-09 13:13:59 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirSamingur vegna nýs sæstrengs Emerald NetworksVodafone (Fjarskipti hf.) og Emerald Networks hafa undirritað samning um afnot af nýjum sæstreng sem nefnist Emerald Express og ráðgert er að leggja milli Bandaríkjanna og Evrópu með tengingu við Ísland. Emerald Networks ráðgerir að leggja strenginn á næstunni en Vodafone stefnir að því að nýta hann til gagnaflutninga til og frá landinu í a.m.k. 15 ár frá og með haustinu 2014. Með tilkomu strengsins margfaldast gagnaflutningsgeta Vodafone en þörfin fyrir aukinn gagnaflutningshraða og meiri afköst er sífellt að aukast. Vodafone er fyrsta fjarskiptafyrirtækið hér á landi sem semur um afnot af strengnum. Um forsögu samningsins er vísað í fyrri fréttatilkynningar Vodafone til kauphallar dagsettar 18. febrúar 2013 og 27. mars 2013. Um Emerald Express sæstrenginn Emerald Express sæstrengurinn verður afkastamesta og hraðasta gagnaflutningstengingin á milli Norður Ameríku og Evrópu og mun hann jafnframt tengjast við Ísland. Strengurinn byggir á nýrri tækni sem auðveldar uppfærslur á afkastagetu hans síðar. Heildarlengd strengsins er yfir 6.700 km og þar af er leggurinn sem lagður verður til Íslands um 1.300 km. Sæstrengurinn mun koma á land í nágrenni við Grindavík. Emerald Networks hefur samið við bandaríska fyrirtækið TE SubCom um að leggja strenginn. Félagið hefur mikla reynslu af lagningu sæstrengja og hefur þegar lagt um 490 þúsund kílómetra af neðarsjávarköplum sem jafngildir tólf sinnum ummáli jarðarinnar við miðbaug. Helstu atriði samnings Fyrir 15 ára afnotarétt (IRU) af strengnum og kaup á búnaði greiðir Vodafone stofnkostnað en meginþungi þeirrar fjárfestingar fellur til á þriðja ársfjórðungi 2014 og þriðja ársfjórðungi 2015. Stofnkostnaður verður eignfærður og afskrifaður á líftíma samningsins. Auk þessa greiðir Vodafone árlegan kostnað sem gjaldfærður verður í gegnum rekstur félagsins. Samningurinn tryggir Vodafone a.m.k. 15 ára afnot af strengnum. Vodafone fær aðgang að strengnum strax við gangsetningu hans og þá verða fyrstu greiðslur inntar af hendi. Fjárhæðir samningsins eru trúnaðarmál milli samningsaðila. Fjárhagsleg áhrif á Vodafone Miklar líkur eru á því að áhrif samningsins á EBITDA hagnað og hagnað félagsins verði jákvæð en ekki er þó hægt að segja nákvæmlega til um hver þau verða. Áhrifin munu ráðast af þeim viðbótartekjum sem Vodafone mun hafa af gagnaflutningum á samningstímanum og því rekstrarhagræði sem skapast af samningnum. Ómar Svavarsson, forstjóri Vodafone:"Við erum ákaflega ánægð með þennan samning og ég vil nota tækifærið og þakka þeim sem hafa unnið að samningagerðinni um langa hríð fyrir ánægjulegt og árangursríkt samstarf. Ég er vongóður um að aðkoma Vodafone að verkefninu tryggi framgang þess og eftir u.þ.b. eitt ár verði Vodafone farið að flytja gögn til og frá landinu gegnum nýja strenginn. Samningurinn tryggir aukna afkastagetu Vodafone, aukið hagræði til framtíðar litið og við reiknum með jákvæðum áhrifum á reksturinn. Annars má segja að lagning nýs sæstrengs til Íslands sé söguleg. Hún mun auka samkeppnishæfni landsins og það eru hagsmunir allra Íslendinga að svo verði." [HUG#1722248] |
|||
|