2009-05-20 16:00:00 CEST

2009-05-20 16:00:02 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fljótsdalshérað - Ársreikningur

- Ársreikningur 2008


Rekstur sveitarsjóðs  Fljótsdalshéraðs  ásamt  undirfyrirtækjum fór ekki
varhluta af breyttum aðstæðum í efnahagsmálum þjóðarinnar á árinu 2008.  Mestu
áhrifin urðu á fjármagnsliðum sem hækkuðu gríðarlega miðað við áætlanir bæði
vegna mikillar verðbólgu og gengishækkun erlendra lána.  Annað sem gerði erfitt
fyrir í rekstri sveitarfélagsins var að fyrirséð niðursveifla í útsvarstekjum
varð brattari en ráð var fyrir gert og þar hafði efnahagskreppan mest áhrif. 
Framlög Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á árinu 2008 voru mun lægri en áætlað hafði
verið  þar sem ekki kom til greiðslu áætlað sameiningarframlag sem þó hafði
verið samþykkt af Alþingi í fjáraukalögum fyrir árið 2008.  Auk þess eru
reglubundin framlög Jöfnunarsjóðs í lágmarki á árunum 2008 og 2009 þar sem
miklar útsvarstekjur undanfarinna ára hafa áhrif á útreikning þeirra.   Í
langtímaáætlun sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að framlög  Jöfnunarsjóðs
hækki jafnt og þétt eða úr 275 millj. kr. 2008 í 580 millj. árið 2012 miðað við
núgildandi úthlutunarreglur sjóðsins. 

Ársreikningur verður tekinn til umfjöllunar og afgreiðslu í bæjarstjórn
Fljótsdalshéraðs við fyrri umræðu þann 20. maí og við síðari umræðu þann 3.
júní n.k. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. 
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar.  Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum.  Um er að ræða Aðalsjóð, Eignasjóð, Þjónustumiðstöð og
Fasteignafélag Fljótsdalshéraðs ehf.  Til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu Fljótsdalshéraðs en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum.  Fyrirtækin
eru:  Atvinnumálasjóður, Brunavarnir á Héraði, Dvalarheimili aldraðra,
Félagslegar íbúðir, Fjárafl, Fráveita, Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Minjasafn Austurlands, Sláturhúsið - Menningarsetur ehf. og Sorpstöð Héraðs.
Afkoma af rekstri sveitarfélagsins var neikvæð um 806 millj. kr. á árinu 2008
samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A og B hluta en fjárhagsáætlun gerði
ráð fyrir 0,4 millj. kr. rekstrarafgangi.  Rekstrarniðurstaða A hluta var
neikvæð um 522 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir  7,5 millj. kr. 
rekstrarafgangi.  Fjárhagsáætlun fyrir árið 2008 var samþykkt í byrjun desember
2007 og er hún til viðmiðunar í ársreikningi.  Áætlunin var samkvæmt venju
undanfarinna ára ekki tekin til formlegrar endurskoðunar á árinu 2008. 

Tekjur af útsvörum og fasteignasköttum voru 78 millj. kr. undir áætlun og
framlög jöfnunarsjóðs urðu 106 millj. undir áætlun.   Laun og launatengd gjöld
ásamt breytingu á lífeyrisskuldbindingu fóru 50 millj. kr. fram úr áætlun og
vega þar þyngst nýir kjarasamningar við grunnskólakennara á miðju ári og á
almennum vinnumarkaði á haustmánuðum. 

Fjármagnsliðir samstæðureiknings námu 696 millj. kr.   Þar af eru reiknaðar
verðbætur og gengismunur 597,6 millj. kr.   Frávik á niðurstöðu fjármagnsliða
og áætlunar nemur 516 millj. kr.
Neikvætt handbært fé til rekstrar var 97 millj. kr., sem skýrist af
tekjusamdrættinum og aukins launakostnaðar.  Fjárfestingahreyfingar námu 964
millj. kr. á árinu 2008.  Fjármögnunarhreyfingar námu 944 millj. kr. á árinu en
lækkun á handbæru fé nam 117 millj. kr. og nam það 270 millj. kr. í árslok
2008. 

Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda námu 938 millj. kr. hjá
samstæðunni.  Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 248.  Laun og launatengd gjöld
sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur 50,7%.  Annar rekstarkostnaður
var 47,2% af rekstartekjum.  Skatttekjur eða útsvar og fasteignaskattur námu
356 þús. kr. á hvern íbúa en rekstartekjur í heild voru 606 þús. kr. á hvern
íbúa á árinu 2008. 

Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 5.122 millj.
kr., þar af nema veltufjármunir 599 millj. kr.  Skuldir sveitarfélagsins með
lífeyrisskuldbindingum nema 4.240 millj. kr., þar af eru skammtímaskuldir 651
millj. kr.  Veltufjárhlutfallið er 0,92 í árslok en var 1,41 árið áður. 
Bókfært eigið fé nam 883 millj. kr. í árslok 2008 en nam 1.688 millj. kr. í
árslok 2007.

Helstu niðurstöður rekstrar og sjóðstreymis A og B hluta: Sjá viðhengi.