2009-06-19 18:41:41 CEST

2009-06-19 18:42:41 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
SPRON hf. - Fyrirtækjafréttir

- SPRON hf. sækir um slitameðferð


Bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. hefur í dag sótt um
slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til 1. tl. 3. mgr. 4. gr.
laga nr. 44/2009, um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, með
síðari breytingum. 

Þann 21. mars 2009 ákvað Fjármálaeftirlitið að taka yfir vald hluthafafundar og
víkja félagsstjórn SPRON frá í heild sinni. Jafnframt skipaði
Fjármálaeftirlitið skilanefnd (nú bráðabirgðastjórn) fyrir SPRON, sem tók við
öllum heimildum stjórnar skv. ákvæðum laga nr. 2/1995, sbr. 100. gr. a. laga
nr. 161/2002, sem þá var í gildi. 

Bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma
ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir félagsins og
endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi. 

Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi
rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn félagsins nauðsynlegt að óska
eftir slitum á félaginu í samræmi við lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.