2009-06-19 18:43:44 CEST

2009-06-19 18:44:44 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir

- Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. sækir um slitameðferð


Stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. hefur í dag sótt um slitameðferð til
Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til 3. tl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 44/2009, um
breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, með síðari breytingum. 

Þann 21. mars 2009 ákvað Fjármálaeftirlitið að taka yfir vald hluthafafundar
SPRON hf., móðurfélags Frjálsa fjárfestingarbankans, og víkja félagsstjórn
SPRON frá í heild sinni. Jafnframt skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd (nú
bráðabirgðastjórn) fyrir SPRON, sem tók við öllum heimildum stjórnar félagsins
skv. ákvæðum laga nr. 2/1995, sbr. 100. gr. a. laga nr. 161/2002, sem þá var í
gildi. 

Bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma
ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir samstæðu
félagsins og endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að
leiðarljósi. 

Eftir að bráðabirgðastjórn SPRON var skipuð tók hún yfir stjórn Frjálsa
fjárfestingarbankans hf. og hefur unnið að endurskipulagningu starfseminnar
miðað við breyttar forsendur. Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur
skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn
félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu í samræmi við lög nr.
161/2002 um fjármálafyrirtæki