2015-02-26 14:17:01 CET

2015-02-26 14:18:02 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing - Ársreikningur

Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing – Ársreikningur fyrir árið 2014


Veðskuldabréfasjóðurinn Virðing sem er í rekstri Rekstrarfélags Virðingar hf.
gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014. 

  -- Hagnaður af rekstri sjóðsins nam 568,7 milljónum króna samkvæmt
     rekstrarreikningi á árinu 2014.
  -- Hrein eign sjóðsins nam 73,6 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  -- Ársreikningurinn var endurskoðaður af Rýni endurskoðun ehf. í samræmi við
     alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að
     ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahag
     hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign á árinu 2014, í samræmi
     við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga
     verðbréfasjóða og að skýrsla stjórnar hafi að geyma þær upplýsingar, komi
     þær ekki fram annars staðar í ársreikningnum, sem þar ber að veita í
     samræmi við lög um ársreikninga.

Nánari upplýsingar um ársreikning Veðskuldabréfasjóðsins Virðingar veitir
starfsfólk Rekstrarfélags Virðingar í síma 5856500.