2011-06-20 11:52:09 CEST

2011-06-20 11:53:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjavíkurborg - Fyrirtækjafréttir

Útboð RVK 09 1


Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs þann 22. júní 2011 til
stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 1. 

Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 1.000 milljónir
króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka
útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. 

Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði.
Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. 

Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð nemur alls 11.670 m.kr. að nafnvirði.
Heimild til stækkunar á árinu 2011 er 6.300 m.kr. að nafnvirði. Flokkurinn
hefur verið stækkaður um 2.340 m.kr. það sem af er árinu 2011. 

Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 27. júní 2011.

Umsjón með sölu skuldabréfanna hafa Íslandsbanki, MP banki og Saga
Fjárfestingarbanki. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali:

Nánari upplýsingar gefur:
Birgir Björn Sigurjónsson
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar
Sími: 693-9321