|
|||
![]() |
|||
2016-04-07 20:05:31 CEST 2016-04-07 20:05:31 CEST REGULATED INFORMATION Síminn hf. - FyrirtækjafréttirSíminn hf.: Niðurstaða fundar með lánveitendumNiðurstöður fundar Símans hf. með Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, og skuldabréfaeigendum í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 sem haldinn var fimmtudaginn 7. apríl 2015 kl. 16:45 í Ármúla 25, 108 Reykjavík. 1. Ákveðið var að breyta tryggingarbréfi, upphaflega dags. 22. desember 2005, ásamt síðari breytingum, þannig að skylda til reglulegrar uppfærslu eigna í viðaukum A, B og C (fasteignir), D (farsímakerfi), E (fastlínukerfi), K, L, M, og N (hugverkaréttindi, vörumerki og einkaleyfi) verði felld niður. 2. Ákveðið var að breyta veðskjölunum, eins og þau eru skilgreind í samkomulagi um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku, dags. 13. júní 2013, milli Símans hf., Arion banka hf., sem lánveitandi og veðvörsluaðili, og eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01, þannig að skilgreining lánasamnings Símans hf., dags. 13. júní 2013, að höfuðstólsfjárhæð kr. 19.000.000.000 við Arion banka hf. innifeli breytingu á láninu, eins og samsetningu þess verði mögulega breytt í framtíðinni, þannig að hl uti lánsins, allt að kr. 2.000.000.000 sé í formi ádráttarláns og/eða yfirdráttarlínu og allt að kr. 5.000.000.000 verði í erlendum gjaldeyri, áfram á 1. veðrétti. Frekari upplýsingar veita Helgi Þorsteinsson, forstöðumaður fjárstýringar, í farsíma 892 6699 og Óskar Hauksson, fjármálastjóri, í farsíma 899 6169. |
|||
|