|
|||
![]() |
|||
2016-04-08 12:50:35 CEST 2016-04-08 12:50:35 CEST REGULATED INFORMATION Tryggingamiðstöðin hf. - FyrirtækjafréttirTM hf.: A.M. Best staðfestir fjárhagslegan styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar (TM).Matsfyrirtækið A.M. Best hefur staðfest fjárhagslegan styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) og er einkunnin B++. Mat A.M. Best nær einnig til lánshæfis og fær TM lánshæfiseinkunnina bbb+. TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá alþjóðlegum matsfyrirtækjum, eitt íslenskra tryggingafélaga. Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins. Meðfylgjandi er fréttatilkynning A.M. Best frá 7. apríl um niðurstöður matsins á TM. |
|||
|