|
|||
![]() |
|||
2012-03-19 10:29:14 CET 2012-03-19 10:30:16 CET REGULATED INFORMATION This message has been corrected. Click here to view the corrected message Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirÚtboð RVK 09 1Reykjavíkurborg hefur ákveðið að efna til útboðs þann 21. mars 2012 til stækkunar á skuldabréfaflokki með auðkennið RVK 09 Reykjavíkurborg stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 milljónir króna að nafnvirði. Reykjavíkurborg áskilur sér rétt til að hækka eða lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Útboðið verður með því fyrirkomulagi að samþykkt tilboð bjóðast á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) mun ákvarða söluverð. Heildarstærð flokksins fyrir þetta útboð nemur alls 14.515 m.kr. að nafnvirði. Heimild til stækkunar á árinu 2012 er 6.230 m.kr. að nafnvirði. Þetta er fyrsta útboð ársins 2012 Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 26. mars 2012. Umsjón með sölu skuldabréfanna hafa Íslandsbanki og MP banki. Óskað er eftir tilboðum í samræmi við útboðsskilmála í fylgiskjali: Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborg Sími: 693-9321 |
|||
|